149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:16]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir ræðuna. Ég verð að segja að ég er steinhissa á þeim upplýsingum að hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hv. þm. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, hafi gefið yfirlýsingu um að henni fyndist skynsamlegt í málinu að fresta því fram á haustið og vil spyrja hv. þingmann hvaðan hann hafi þessar upplýsingar. Ég minnist þess ekki að hafa séð þetta.

Ég minnist þess að hafa heyrt það fyrir nokkrum dögum, eða vikum jafnvel, að hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, hafi gefið svipað tvíræða yfirlýsingu um þetta sama, að hugsanlegt væri að þessu máli yrði að fresta. Það er það sem við höfum verið að tala um hérna allan tímann, í fyrsta lagi að fara með málið fyrir sameiginlegu EES-nefndina og leitast við að fá undanþágu. Það væri þó skynsamlegt til að skoða málið að gefa sér tíma og leyfa því að þroskast vegna þess að bara núna á örfáum dögum hefur málið þroskast heilmikið.

Ég spyr hv. þingmann hvort hann geti ekki verið mér sammála um að það hefur þroskast mjög mikið á síðustu 8–10 dögum eftir að við fórum að ræða það og þjóðin fór að fylgjast með og taka þátt í þessu. Ég verð að segja fyrir mig að ég fæ ótal símtöl, SMS, tölvupósta og skilaboð og ég hitti fólk á förnum vegi og það er verið að gauka að manni alls kyns hugmyndum, athugasemdum — og skoðunum. Langflestir hafa sterkar skoðanir á þessu máli og það vakna nýjar hugmyndir, þeim er velt upp hér og málið er að þroskast mjög hratt.

Ég spyr hv. þingmann að þessu.