ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Nú hef ég ásamt mörgum öðrum fylgst með framhaldssögunni Harrý og Heimir leita fyrirvaranna um nokkurra daga skeið og það virðist því miður ganga hægt. Það kemur mér ekki á óvart vegna þess að ég sat hér í þingsal á mánudaginn upp úr fjögur þegar hv. þm. Ólafur Ísleifsson fór í andsvar við þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins, Birgi Ármannsson, og spurði um fyrirvarana. Ég hef lýst því þannig að umhverfið hér hafi allt litið út eins og styggð hefði komið að laxatorfu í hyl þegar þingmenn Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmenn ráðherra skutust hliðarherbergjanna milli, fórnuðu höndum og voru greinilega, án þess að kalla það upphátt, að reyna að finna á örskotsstundu til fyrirvara sem enginn vissi hvar var. Enda stóð það heima, klukkutíma síðar var búið að flagga framan í okkur fjórum fyrirvörunum sem ég held að hafi síðan endað sem fimm. Við enduðum daginn með fimm fyrirvara, suma hverja ósköp undarlega. Fréttatilkynningar á heimasíðu utanríkisráðuneytisins voru tveir þeirra og eitthvað álíka skrýtið en morguninn eftir, á þriðjudagsmorgninum, kom upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins í viðtal og útskýrði að enginn þessara meintu fyrirvara væri fyrirvarinn, hann væri einhvers staðar allt annars staðar. Þarna kristallaðist það að þingmenn stjórnarflokkanna höfðu ekki minnsta grun um hvar þessir fyrirvarar voru staddir í heiminum.
Harrý og Heimi er nokkur vorkunn að vera ekki enn búnir að finna þá þegar hörðustu stuðningsmenn innleiðingarinnar hafa ekki grænan grun. Samkvæmt þeim upplýsingum sem komu frá utanríkisráðuneytinu núna eru þeir í — hv. þingmaður þekkir þá sögu betur en ég — meintri óútgefinni reglugerð og það á bara eftir að koma í ljós hvernig það atvikast allt saman.