Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Grein sú eða frétt sem birtist í breska blaðinu Sunday Times í gær varpar á ýmsan hátt nýju ljósi á þetta mál, þriðja orkupakkann. Eitt af því sem er sérstaklega áhugavert við umfjöllun blaðsins um málið er að maður að nafni Edi Truell, sá sem segist reiðubúinn að ráðast í lagningu sæstrengs og fer fyrir hópi fjárfesta, segir að ekkert vanti upp á annað en samþykki viðskiptaráðherra Bretlands svoleiðis að hægt sé að ráðast í verkefnið og skapa með því strax um 800 störf á Norðaustur-Englandi og þeim fjölgi svo í framhaldinu. Þetta þykir mér sérstaklega áhugavert í ljósi þess að ef menn geta með því að nýta hreina íslenska orku búið til fleiri hundruð störf strax á Norðaustur-Englandi og svo jafnvel þúsundir starfa í framhaldinu, þá hlýtur að vera eðlilegt að álykta sem svo að það hefði verið hægt að skapa þessi störf og þá verðmætasköpun sem þeim fylgir á Íslandi. Með öðrum orðum, ef þessi íslenska orka er tekin og flutt út til að búa til störf og verðmæti erlendis, þá sé verið að taka af því sem hægt hefði verið að skapa hér og taka af Íslendingum þau störf sem hér hefðu orðið til hefði orkan verði nýtt innan lands.
Það sem er verra er að verði af þessari tengingu er hættan sú að ekki aðeins fjölgi störfum minna en ætla hefði mátt heldur gæti orðið talsverð fækkun starfa frá því sem nú er. Norðmenn hafa reyndar áhyggjur af því sama vegna innleiðingar þriðja orkupakkans þar í landi. Þar muni störfum fækka um jafnvel tugi þúsunda samkvæmt skýrslu sem birtist um málið og fjallað var um í Bændablaðinu nýverið.
Ég hef fært rök fyrir því fyrr í þessari umræðu að áhrifin geti orðið hlutfallslega meiri á Íslandi. Nú ætla ég útskýra það, m.a. í samhengi við þessa frétt Sunday Times þar sem fullyrt er að íslenskt rafmagn geti skapað þennan fjölda starfa í Norður-Englandi, með hvaða hætti störfum gæti fækkað á Íslandi, ekki aðeins að við missum tækifærið til að fjölga þeim, heldur geti þeim fækkað. Tökum bara sem dæmi mitt kjördæmi, Norðausturkjördæmi. Þar er á nokkrum stöðum, ekki hvað síst í Eyjafirði, á Húsavík og Austurlandi, umtalsverð stóriðja. Þessi stóriðja er til staðar sérstaklega vegna þess að hér hafa menn aðgang að rafmagni á samkeppnishæfu verði og það rafmagn er hreint, grænt rafmagn, ef svo má segja.
Verði þetta samkeppnisforskot tekið af landinu og raforkuverð hækki, enda séum við þá orðin hluti af evrópska raforkumarkaðnum og um leið sé rafmagn tekið úr sameiginlegum evrópskum potti þar sem öllu ægir saman, kjarnorku, kolaorku o.s.frv., er þetta forskot farið og forsenda þess að þessi fyrirtæki komi sér fyrir og byggi upp hér.
Þá stendur enn eftir veikleikinn sem felst í fjarlægð landsins frá mörkuðunum, annars vegar fjarlægð frá hráefnisframleiðendum og hins vegar fjarlægð frá mörkuðum fyrir þá unnu vörur sem koma úr þessari framleiðslu. Þá er raunveruleg hætta á því að einhver þessara fyrirtækja færi starfsemi sína til að mynda til Evrópu til að vera nær markaðnum, spara í flutningskostnaði en fái þá áfram orkuna, m.a. íslensku orkuna, á því verði sem stæði til boða hér, þ.e. þessu sameiginlega evrópska verði.
Mér finnst óskiljanlegt, ekki hvað síst út frá hagsmunum landsbyggðarinnar, að menn skuli ætla að taka aðra eins áhættu eins og felst í þessum þriðja orkupakka.