ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki haft tækifæri til að kynna mér þennan fjórða orkupakka sem var afgreiddur frá ráðherraráðinu að mér skilst fyrir fáeinum dögum. Það sætir auðvitað furðu að við þingmenn skulum ekki hafa fengið neinar upplýsingar um þetta, það skuli ekkert liggja fyrir um í hvað stefnir, skref í átt að hverju er ætlast til að þingið taki með innleiðingu þriðja orkupakkans. En það kæmi mér ekki á óvart að hv. þingmaður hefði rétt fyrir sér því að þetta er allt á sömu bókina lært. Við sjáum þróunina hjá Evrópusambandinu og eðlilegt að þróunin í orkumálum sé til aukinnar miðstýringar og aukins valdsviðs ACER-stofnunarinnar, enda er vísbendingu þegar að finna og mjög sterka vísbendingu í breytingu á reglugerðum 713, 714 og 715, sem eru kannski þær reglugerðir sem við erum mest að ræða hér, og í reglugerð 347 frá árinu 2013 sem liggur fyrir og gengur einmitt út á að auka mjög verulega valdsvið þessarar stofnunar og getu hennar til að taka völdin af ríkjum jafnvel og fylgjast með því að þau vinni að þeim markmiðum sem stofnunin setur.
Nú hef ég ekki náð að sannreyna þetta sjálfur en mér skilst að í þessum fjórða orkupakka sé auk þess verið að færa umræðuna frá því að hún nái til einstakra ríkja og menn séu farnir að ræða landsvæði með tilliti til orkumála, allt til þess að reyna að útmá landamærin og auka með því enn á vald þessarar stofnunar. Þetta er allt á sömu bókina lært.