149. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:36]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Í upphafsorðum ræðu hv. þingmanns, sem ég þakka fyrir, kom fram að u.þ.b. 62% aðspurðra í nýlegri skoðanakönnun væru andvíg því að orkupakki þrjú yrði innleiddur í íslenskan rétt. Engu að síður þráast menn við og halda áfram að berja hausnum við steininn. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann eigi einhverja skýringu á því hvers vegna menn móast við að halda áfram í þessu máli þegar fyrir liggur fjöldinn allur af greinargerðum þar sem menn vara við akkúrat þessari leið og leggja til aðra leið. Það er eins og mönnum sé bara ekkert heilagt og þeir halda áfram alveg ótrauðir.

Mig langaði til að fara yfir það með hv. þingmanni hvort hann sjái eitthvað sem réttlæti að menn haldi svona áfram. Finnst honum eitthvað hafa komið í ljós í umfjöllun okkar þessa daga og þessar nætur sem bendir til þess að það sé skynsamlegt að fara þá leið sem ríkisstjórnin hefur valið sér? Telur hann að sú leið sem ríkisstjórnin hefur valið sér sé vænleg til árangurs og muni t.d. stuðla að betri lífskjörum hér?

Mig langar líka til að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að innleiðing þessa pakka eins og nú er áætluð sé líkleg til að skila hærra orkuverði til neytenda en er nú í dag.