149. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:44]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það væri svo sem ekki í fyrsta skipti sem flokkar á þessum hluta pólitíska litrófsins espa hver annan upp í keppni í því hver geti verið bestur. Ég held að sameiginlegu markmiðin þeirra, þ.e. að ýta undir að Ísland endi sem aðili að Evrópusambandinu — maður skyldi ætla að þeir hópar væru nægjanlega taktískir til að stilla saman strengi sína í þessum efnum, með hvaða hætti mál eins og þriðji orkupakkinn verði nýtt best til að koma sameiginlega málstaðnum áfram. Það er auðvitað ekki útilokað, eins og hv. þingmaður nefnir, að kappið beri skynsemina ofurliði — þarna eru þessir tveir flokkar, sérstaklega — fari þeir fram úr sér mörgum sinnum í því að sannfæra og styðja við innleiðingar í leiðangri ríkisstjórnarinnar.

Allir vita, ég leyfi mér að segja það, að mjög fáum, ef nokkrum, þingmönnum ríkisstjórnarflokkanna þriggja líður vel með málið eins og það er vaxið. Aftur á móti hafa þeir þessa tvo hópa af klappstýrum, Viðreisn annars vegar og Samfylkinguna hins vegar, sem geta ekki beðið eftir því að málið klárist. Það hefði einhvern tímann sett óróa í brjóst, til að mynda þingflokks Sjálfstæðisflokksins, þegar harðasti stuðningur við innleiðingu máls kæmi frá Samfylkingunni.