149. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:54]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Eins og ég sagði í upphafi ræðu minnar hræða sporin, og hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni tókst að koma í huga mér enn meiri áhyggjum en ég hafði áður. Það er þetta mál, sumir kalla það hráakjötsmál, sem snýr að innflutningi á ófrosnu kjöti, ógerilsneyddum ostum og eggjum.

Það er einhvern veginn hanterað þannig af stjórnvöldum að ekkert bendir til þess að menn ætli að gyrða sig í brók í þeim efnum. Við horfum fram á það, t.d. í því máli, að lausnirnar sem boðið er upp á er það frumvarp sem nú liggur fyrir. Á sama tíma og menn vilja hafa gildistökuna tiltölulega fljótt í tíma er hvert atriðið á fætur öðru af þeim 12 eða 15 sem ætlað er að grípa til til mótvægis, þau eru mörg hver fjarri því að komast til framkvæmda.

Það virðist einhvern veginn vera að ýmsum innan ríkisstjórnarinnar líði best fljótandi, í mestu rólegheitunum, sofandi að feigðarósi. Sú áhersla að reyna að sjá hluti fyrir og grípa til ráðstafana og grípa til aðgerða áður en vandamál verða raunveruleg finnst mér kristallast í því þegar farið var í neyðarsjóðinn til að fara í viðhald á vegum sem allir Íslendingar, nema mögulega samgönguráðherra, vissu að þyrfti að gera og miklu meira. Ég er hræddur um að það horfi með svipuðum hætti við, að einhverju marki, hvað kjötið varðar annars vegar og síðan hvernig yrði brugðist við hins vegar varðandi orkupakkann.