149. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:31]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Sú leið sem verið er að fara hér og sú leið sem stjórnarmeirihlutinn og einhver fylgitungl hans eru að fara er að innleiða orkustefnu Evrópusambandsins. Það á að innleiða hana í smábitum og það er nákvæmlega það sem er að gerast. Til að sjá til þess að það verði innleitt rétt er skrifað inn hvernig þessi blessuðu EES-ríki, Noregur, Ísland og Liechtenstein, skuli leysa sín mál með ESA og hvernig ACER hefur þá áhrif á þær lausnir sem ESA býður upp ef þarf að leysa úr álitamálum.

Á sama tíma og hugmyndin er að innleiða orkustefnu Evrópusambandsins hefur Ísland ekki orkustefnu. Á það bendir Eyjólfur Ármannsson lögmaður ágætlega í áliti sínu, einu af sínum álitum, og að það sé í rauninni glapræði að halda áfram á þessari braut án þess að búið sé að marka sjálfstæða stefnu fyrir landið. Þetta finnst mér býsna mikilvægt — og ég hef verið að staglast á því núna — ekki síst í ljósi þess að við sjáum núna eða getum séð í það minnsta, hvert orkustefna Evrópusambandsins er að leiða okkur og mun leiða okkur með orkupakka fjögur. Við sjáum hver næstu skref verða. Við eigum að geta metið með þokkalegum hætti hver áhrifin verða. Við eigum að geta fengið okkar færustu sérfræðinga til að skoða málin fyrir okkur og svara t.d. þeim spurningum sem ég bar upp áðan varðandi þróun valds og áhrifa þessarar stofnunar, ACER, og hvort það hafi áhrif á undirstofnanir á Íslandi, bara svo dæmi sé tekið.