149. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:18]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég man að þegar ég var nýkominn inn á þing, óþolinmóður ungur þingmaður eins og kallað er, á besta aldri, rak ég hornin í þennan annan pakka sem við höfðum þá ekki fyrir löngu samþykkt og var kominn inn í íslenskan rétt með þeim afleiðingum að við þurftum að skipta upp orkufyrirtækjum okkar. Við þurftum þess ekki, en við skiptum þeim upp af því að við vorum kaþólskari en páfinn. Hefðum ekki þurft að gera það eins og við gerðum, gerðum það samt. Ég man eftir því að ég talaði við mér eldri og reyndari menn í þessu fagi og sagði: Hvers vegna í ósköpunum segjum við þessu bara ekki upp? Við gerðum þarna mistök. Við tókum þetta allt of alvarlega. Skiptum upp fyrirtækjum sem við hefðum ekki þurft að gera, hækkuðum orkuverð til almennings og ekki bara orkuverð heldur lögðum við, ef við tókum saman orkuverð og flutning, byrðar á heimili og fyrirtæki í landinu. Og ég sagði: Þetta er tómt bull. Hættum við þetta. Og mér var sagt: Heyrðu, góði minn. Þetta er nú ekki alveg svona. Það er búið að taka upp þessa gerð. Ef þú ætlar að losna undan henni, þá þarftu að segja upp EES-samningnum í heild.

Nú er þriðji orkupakkinn hér. Og ég hef vitnað svolítið í aldraðan lögspeking sem ég hitti um daginn og hann sagði: Það skiptir ekki máli hvort við höfum gert einhver mistök í fortíðinni, m.a. það að innleiða númer 1, innleiða númer 2 eins og við gerðum, það er kominn tími til að stíga niður fæti. Og hann sagði: Það skiptir heldur engu máli hvort það hefði verið hægt að halda betur á þessu máli einhvern tímann áður. Við getum enn sent þetta til sameiginlegu EES-nefndarinnar, fengið þá niðurstöðu sem hægt er með samningum og innleitt þetta síðan með alvörufyrirvörum frá ESB sem verður ekki ágreiningur um. Þá getum við innleitt þennan orkupakka eins og við höfum innleitt allar aðrar gerðir sem hafa komið frá ESB, en bara á okkar forsendum með samkomulagi um að hann haldi tryggilega.