149. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:50]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og tek undir með honum að það er alvarlegt að ætla að fresta því, eins og komið hefur fram t.d. í máli hæstv. utanríkisráðherra, að taka á þessum stjórnskipulega þætti þangað til við stöndum frammi fyrir sæstrengsmálinu. Ég held að það sé afar varhugaverð nálgun að þessu máli að svara ekki þeirri spurningu hér og nú hvort stjórnskipulegi fyrirvarinn haldi og standist stjórnarskrána. Það eru mjög sérstök vinnubrögð að ýta vandamálinu á undan sér í trausti þess, eins og hæstv. forsætisráðherra sagði í dag, að hún vonaðist eftir því að það kæmi enginn sæstrengur.

Það vantar allan kjark. Stjórnvöld eru inni í sjálfum sér og þora ekki að stíga það skref sem þarf að stíga af djörfung, að ganga í það mál að fá þessa varanlegu undanþágu. Ég kalla það bara, herra forseti, kjarkleysi að fresta því að taka á málum sem þarf að gera í þessu. Þetta mál þarf að fá á hreint. Það er ekki hægt að halda þjóðinni í einhverjum ótta með það að hugsanlega geti það gerst að það komi sæstrengur og þá þurfum við að fara að taka á málinu. Það er bara verið að fresta vandanum, herra forseti, og það er aldrei gott. Það á að ganga strax og hreint til verks og fá skýra undanþágu. (Forseti hringir.) Það er eina varanlega lausnin sem er skynsamleg í stöðunni.