149. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:03]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég er sammála hv. þingmanni með þetta og þess vegna vil ég kalla það hræðsluáróður, fullyrðingar um að EES-samningurinn geti verið í hættu ef við förum þá lögformlegu leið að neita að innleiða tilskipunina og fara með málið fyrir sameiginlegu EES-nefndina sem hefur það hlutverk að leysa úr ágreiningi eins og í þessu tilfelli svo að við getum fundið lausn sem báðir aðilar geta unað við. Ég held að það komi aldrei til þess að samningurinn verði í hættu vegna þess að EES-samningurinn er ákaflega mikilvægur Evrópusambandinu og kemur til með að verða það enn meir í framtíðinni, einmitt vegna þess að okkar hreina orka verður Evrópusambandinu dýrmætari og mikilvægari með hverjum degi. Evrópusambandið hefur ekki svo greiðan aðgang að hreinni orku og það verður að minnka jarðefnaeldsneytisnotkun og hefur sínar skuldbindingar í loftslagsmálum. Þetta er einn liður í því að eiga aðgang að hreinni orku. Og þann aðgang fær Evrópusambandið í gegnum þessa tilskipun og í gegnum EES-samstarfið.

Það að halda því fram að hér fari allt í uppnám ef við förum fram á einhverja undanþágu eru að mínu mati rök sem standast engan veginn og er ekkert annað en hræðsluáróður af hálfu ríkisstjórnarinnar.