ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Það hefur komið fram í þessari umræðu í þó nokkurn tíma að það mál sem við erum að tala um er flókið og í sjálfu sér getur verið erfitt fyrir almenning að gera sér grein fyrir því í hverju nákvæmlega það felst. Þetta segi ég vegna þess að sá hópur sem hér hefur verið að malda í móinn hefur reynt að kynna sér þetta mál alveg út í hinar ystu æsar, fullhertur af því. Þess vegna veltir maður fyrir sér hvernig almenningur í landinu á að vega og meta þær upplýsingar sem honum berast af málinu.
Þeir sem bera þetta mál fram hafa sagt að þeir sem hafa kynnt sér málið best séu líklegastir til að fylgja því. Þá hlýtur maður að spyrja: Hvers vegna taka menn sér þá ekki bara aðeins lengri tíma, kynna málið betur og fjölga fylgjendum þessa máls? Eins og málið stendur nú eru um 62% þjóðarinnar á móti því og maður spyr: Ef menn vilja hafa frið um málið, vinna það virkilega vel, hvers vegna kynna menn það þá ekki betur? Það gera þeir best með því að fresta því um stund og kynna það betur fyrir öllum sem það varðar áður en að innleiðingin er síðan kynnt fyrir alvöru.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann um tregðu meiri hlutans á Alþingi til að kynna þetta mál virkilega vel fyrir þeim sem það varðar mest, þjóðinni sjálfri.