ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Já, það er rétt að það er ákveðin lagaleg óvissa uppi. Bent hefur verið á það af sérfræðingunum.
Duldir hagsmunir? Ég á mjög erfitt með að svara þessu. Það er mjög erfitt að finna skýringar á því hvers vegna menn vilja ólmir gera þetta með þessu móti sem lagt er upp með. Það er svolítið sérstakt að sjá hvaða flokkar sameinast um þetta. Það er flokkur sem eitt sinn var í mikilli varðstöðu fyrir sjálfstæði landsins sem nú virðist ætla að horfa á það með öðrum augum, svo er sósíalískur flokkur sem er allt í einu farinn að markaðsvæða auðlindir. Þetta er svolítið sérstök staða sem við erum í. Samfylkingarflokkarnir eru auðvitað á málinu vegna þess að þeir halda að þetta flýti ferðalaginu inn í Evrópusambandið, sem verður vonandi ekki.
Hv. þingmaður spurði: Gera þeir þingmenn sem eru fylgjandi málinu sér grein fyrir því að með því að greiða þessu atkvæði sé verið að taka fyrsta skrefið í að tengjast evrópska raforkumarkaðnum? Ég held að þeir geri sér alveg grein fyrir því í grunninn en ég held hins vegar að það sé búið að teikna málið þannig upp að það sé léttvægara en það er í raun.
Mig langar að hvetja þessa ágætu samþingsmenn okkar að krefjast þess að fá að vita meira um það sem liggur á borðinu um framtíðina áður en gengið er til atkvæða af því að ekki verður snúið til baka þegar búið er að samþykkja orkupakka þrjú.