149. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:25]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Er það ekki einmitt í þessu sem sú snúna staða sem við stöndum í kristallast, að það er svo augljóst og æpandi að það er nauðsynlegt að skoða þessi mál heildstætt, mál sem snúa að orkupakka þrjú og orkupakka fjögur eins og hann liggur fyrir núna? Þó að manni heyrist sem betur fer einhver viðsnúningur vera að hefjast virðist stjórnarflokkunum í augnablikinu þykja mikilvægara að losna frá málinu með því að klára það í atkvæðagreiðslu. Bendir eitthvað til þess að það að klára orkupakka þrjú með þeim hætti sem ríkisstjórnin leggur upp með geri okkur verkið haganlegra hvað það varðar að sinna hagsmunagæslu fyrir íslenska þjóð þegar kemur að orkupakka fjögur?

Öll almenn skynsemi, „common sense“, með leyfi forseta, eins og það er kallað, segir manni að það væri auðveldara að taka afstöðu til og aðlaga sjónarmið ef pakkarnir tvö, þrjú og fjögur væru skoðaðir í samfellu. Er eitthvað sem þingmanninum dettur í hug að gæti verið einfaldara við innleiðingu fjórða orkupakkans að því gefnu að sá þriðji sé þegar innleiddur án þess að samanburður fari fram? Markmiðið væri e.t.v. að flýta aðlögun að Evrópusambandinu.