149. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:40]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni og tel þetta mjög athyglisverða athugun hjá honum, að líklega megi sjá þarna einhvers konar þrýsting frá Noregi í þá veru að við samþykkjum orkupakkann. Það er alvarlegt mál ef við erum beitt þrýstingi af því tagi vegna þess að það er ákveðin íhlutun í innanríkismál okkar, sem á ekki að eiga sér stað, auk þess sem aðstæður okkar eru allt aðrar. Þess vegna veltir maður fyrir sér hver næstu skref verði hvað þetta varðar.

Er hættan sú að íslensk stjórnvöld komi ekki til með að halda rétti okkar til streitu þegar kemur t.d. að orkupakka fjögur?

Hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson nefndi réttilega áðan að auðvitað verði hægt að færa rök fyrir því að við getum ekki bakkað út úr orkupakka fjögur vegna þess að við erum komin svo langt í innleiðingarferlinu. Gera stjórnvöld, utanríkisráðherra og ríkisstjórnin, sér grein fyrir því að það að vilja styðja við bakið á Noregi hvað þetta varðar, að vera ekki að rugga þessum báti, geti þá haft þær afleiðingar fyrir okkur að við séum í raun og veru komin alla leið í þessu ferli, að ekki verði aftur snúið?

Það er nefnilega það sem mér finnst skorta á hjá ríkisstjórnarflokkunum, að menn átti sig á því að það verður ekki aftur snúið. Það er kannski það alvarlega við þetta.