ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni andsvarið. Ég held að þetta sé hluti af þeirri ónotatilfinningu sem margir hafa gagnvart þessu máli. Mörgum sýnist þetta vera enn ein salami-sneiðin, eins og það er kallað, sem snýr að því að aðlaga íslenska kerfið jafnt og þétt Evrópuregluverkinu og helst skal það gerast þannig að sem minnst viðspyrna sé veitt, fyrst og fremst af því að sneiðin er svo lítil hverju sinni.
Þó lentu menn í því óvænta núna að raunveruleg viðspyrna varð. Það eru ekki margir þingflokkar sem standa að henni, raunar bara einn, en það er samt þannig að þegar mál er krufið til mergjar, eins og við reynum að gera núna við þetta mál, fljóta upp svo margir angar og margir þættir sem þarfnast meiri skoðunar. Það sem ég hef miklar áhyggjur af er að mikið sé af þessum innleiðingarmálum sem — nú er ég ekki að ýja að því að þau séu svipuð að umfangi og orkumarkaðsmálin — en mig grunar að það sé drjúgt af innleiðingarmálum sem hefðu gott af miklu betri og ítarlegri skoðun.
En færibandið mallar og mallar og það er eitt sviðið af öðru þar sem íslenskt regluverk er aðlagað hinu evrópska og þetta virðist vera partur af þeirri vegferð.