ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Nú er það svo að víst eru þeir menn til, hv. fyrrverandi þingmenn og hæstv. ráðherrar fyrrverandi, sem hafa stigið fram og varað við þessum orkupakka, menn sem eiga ekkert sameiginlegt í pólitík, ekki nokkurn skapaðan hlut, m.a. af þeirri ástæðu að þeir voru með í því, ef ég get orðað það þannig, að innleiða orkupakka eitt og tvö. Það eru menn eins og Tómas Ingi Olrich, Sighvatur Björgvinsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Hjörleifur Guttormsson og fleiri, menn sem eiga sjálfsagt fátt eða ekkert sameiginlegt pólitískt. En þá kemur aftur að því sem hér hefur verið haldið fram æ ofan í æ, réttilega: Þetta mál er ekki pólitískt. Þetta mál er ekki flokkspólitískt. Þetta mál á að vera þverpólitískt en því miður er það það ekki, af einhverjum ástæðum sem við getum ekki ímyndað okkur. Það virðist svo sem stór hluti þingmanna stjórnarflokkanna hafi skipt um skoðun, skipt um hest í miðri á, hugsanlega vegna þess að þeim voru seldir fyrirvararnir sem eru ónýtir. Hæstv. ráðherra hefur komið í gervi ryksugusölumanns og selt þeim þessa fyrirvara til að bæta þetta mál en það gerir það ekki.
Mig langar til að fá hugleiðingar hv. þingmanns um að það er ekki einhlítt að þeir sem tóku þátt á sínum tíma í að innleiða orkupakka eitt og tvö séu meðmæltir orkupakka þrjú, líkt og Björn Bjarnason er orðinn núna, sem var á móti þá. En sumir þeirra hafa haldið (Forseti hringir.) þessu áfram og halda til streitu mótmælum sínum gegn orkupakkanum. Það væri gott að fá hugleiðingar um það.