ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Umræða um fundarstjórn forseta orsakaði það að ég gleymdi líka hvert efnisatriði umræðunnar var. Auðvitað var efnisatriði fundarstjórnar svo nátengt að það hefði átt að halda efninu mér í minni.
Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir ræðuna. Það er þannig að margir hafa snúist á síðustu vikum í þessu máli og ég leyfi mér að fullyrða að flestir hafi snúist vegna hinna svokölluðu fyrirvara. Ég myndi halda að það væru ekki miklar ýkjur að segja að hér um bil allir sem voru af miklum þunga á móti innleiðingu málsins og eru í dag fylgjandi því hafi tekið þá ákvörðun út frá hinum svokölluðu fyrirvörum.
Mér er ekki kunnugt um nein önnur efnisatriði sem orsökuðu slíkan viðsnúning, nema ef vera skyldi að kaupa þau rök að illu sé best af lokið, þó að menn vissu að í fyrirvörunum væri lítið hald. En það er öllum náttúrlega velkomið að skipta um skoðun og það getur verið þroskamerki. En það er þá kostur að það gerist á grundvelli breytinga á efnisatriðum máls sem eitthvert hald er í.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann meti það sem svo að líklegt sé að fyrirvararnir, sem talað er um, séu slík breyting á efnisatriðum málsins að réttlæti viðsnúning (Forseti hringir.) þriggja þingflokka.