ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Það þyrfti þá að koma fram hjá þeim aðilum sem hér um ræðir að þeir telji að það sé ástæðan fyrir því að þeir skiptu um skoðun. Ég hef ekki rekist á það í skrifum þeirra.
Þessir fyrirvarar breyta því ekki að raforkuverð hefur hækkað. Það voru meginástæðurnar fyrir áhyggjum þeirra á sínum tíma, að við byggjum við allt annað kerfi, allt aðrar markaðsaðstæður, en í Evrópu og við ættum lítið sameiginlegt með markaðssvæðinu í Evrópu. Þess vegna teldu þeir að við ættum að sækja um undanþágu. Hugsanlega telja þessir aðilar að fyrirvararnir séu það sem valdi því að þeir séu tilbúnir til að samþykkja þetta. En þá er það samt sem áður á skjön við það sem þeir hafa haldið fram og héldu fram á sínum tíma og færðu góð rök fyrir, að að þeirra mati ættum við ekki að undirgangast þessa orkupakka, einfaldlega vegna þess að það myndi leiða til hærra raforkuverðs.
En kannski er kjarni málsins sá að við hlustum á fyrrverandi ráðamenn, fyrrverandi ráðherra, þegar þeir koma með skoðanir sínar. Þeir þekktu málið á sínum tíma og maður skyldi ætla að það þyrfti þá veigamiklar ástæður til að breyta um skoðun. Við sjáum t.d. að fyrrverandi utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, hefur staðið alveg staðfastur á þessu og á því að við eigum ekki að samþykkja orkupakkann, þrátt fyrir að hann hafi verið mjög fylgjandi þeim samningi á sínum tíma. (Forseti hringir.) Við sjáum að það er mikilvægt að hlusta á skýringar þeirra hvað þetta varðar.