149. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:21]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég verð að segja það. Ég tel að við þurfum að hlusta eftir þeim sem þekkja málin best. Þar hef ég oftar en einu sinni vitnað í fyrrverandi utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson. Hann er rökfastur maður og hefur alltaf haft þann kost að geta sett málefni fram með skýrum hætti.

Hann hefur lýst því yfir að í fyrsta lagi hafi hugsunin aldrei verið sú að orkumálin yrðu innan Evrópska efnahagssvæðisins eða innan samningsins, sem er í sjálfu sér athyglisvert hvernig hefur þróast. Samningurinn hefur nefnilega þróast þannig að þar eru málefni sem við gerðum ekki ráð fyrir að yrðu í samningnum, eins og orkumálin og landbúnaðarmálin. Það ætti að mínu mati, og fleiri hafa nefnt það, að vera haldbær rökstuðningur fyrir því að vilja fara með málið fyrir sameiginlegu EES-nefndina, bara á þeim forsendum að þar sé kominn stór og mikill málaflokkur sem var ekki í upphafi samningsins. Þetta er náttúrlega orðinn 25 ára gamall samningur, en hann hefur breyst heilmikið frá því að hann var gerður.

Að því leytinu til tel ég að mjög mikilvægt sé að við hugum að því hverjar hugmyndirnar á bak við samninginn voru í upphafi. Það er innlegg inn í málflutning okkar þegar kemur að því að sækja um varanlega undanþágu sem er mjög mikilvægt að fá og hún mun (Forseti hringir.) í raun og veru leysa öll þau mál sem hér hafa verið rædd og eru þetta stóra áhyggjuefni.