ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Eins og fram hefur komið er þessi hópur ósamstæður. Hann er alla vega ekki á sömu stjórnmálaskoðun, getum við sagt, ekki á sömu lífsskoðun jafnvel, en kemur fram nú til að vara við og auðvitað er það vel þegið. Af hverju? Ég get gert mér í hugarlund að það gæti verið út af því sem kemur reyndar fram í þessari grein að hluta, að menn óttist hækkun á raforkuverði til almennings. Mér datt nú í hug að varla væru þessir ágætu heiðursmenn að koma fram vegna þess að þeir séu með popúlískar kenndir, hafandi hætt í pólitík fyrir allnokkru síðan margir hverjir og fram á þennan dag.
Ég held að sinnaskipti þessa hóps séu fyrst og fremst byggð á reynslu, byggð á reynslunni af því að raforkuverð hafi hækkað og byggð á einlægum áhuga og einlægum áhyggjum af íslenskri þjóð.
Ég held einfaldlega að þessir ágætu menn finni til yfir því í fyrsta lagi, eins og kom fram í grein Sighvats, að orkuverð hækki og einnig vegna hættunnar á því að við missum smátt og smátt völd yfir okkar auðlindum. Þetta eru dálítið stór orð frá manni af þessu sauðahúsi, sem er einlægur Evrópusinni o.s.frv., að koma fram með skoðanir eins og þessar.