ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Winston Churchill sagði einu sinni að það væri hygginna manna háttur að skipta um skoðun, þeir heimsku gerðu það alls ekki. Það er alveg hugsanlegt og álitlegt fyrir suma að skipta um skoðun í ýmsum málum eins og fram hefur komið og ég er ekkert að lasta það á einn eða annan hátt. Málið er hins vegar að hér er hópur manna með mikla reynslu að baki, sumir hafa upplifað það að taka EES-samninginn upp, þ.e. í grunninn árið 1994 líklega, og gengið í gegnum orkupakka númer eitt og tvö, og reynslan kennir þessum mönnum að segja: Hingað og ekki lengra.
Ég hallast að því að hlusta á menn sem hafa þennan bakgrunn og þessa reynslu og í sjálfu sér hef ég engin efni til að efast um þeirra sannfæringu. Eins og fram hefur komið er einn og einn sem hefur skipt um skoðun á hinn veginn af ástæðum sem ég tel ekki eiga endilega erindi við almenning á sama hátt og sinnaskipti þessara ágætu manna sem hafa reynt þetta sjálfir. Kannski hafa þeir séð að sér. Það er nú það heilkenni sem við höfum verið að tala um, að starfandi stjórnmálamenn eiga erfitt með það að átta sig á því að þeir séu að fara villir vegar, (Forseti hringir.) hvað þá heldur að viðurkenna það, og hvað þá heldur — það eru nú fimm sekúndur eftir — að taka mark á því og virða það.