ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Þetta er innlegg inn í umræðuna vegna þess, eins og ég nefndi áðan, að það vekur spurningar um hvers vegna menn sem hafa verið nokkuð harðir andstæðingar skipta um skoðun. Þá á ég við þá sem við hlustum meira á en aðra hvað þetta varðar, þá sem hafa verið stjórnmálamenn, alþingismenn og ráðherrar. Það hljóta að vera mikilvæg rök á bak við það að skipta um skoðun sem ég hef ekki fundið, frú forseti. Það kann að vera að ég hafi rangt fyrir mér, en ég hef ekki orðið var við að veigamikil rök hafi komið fyrir því að þeir sem töldu að við ættum ekki að fara í þessa markaðsvæðingu vegna þess að aðstæður okkar eru allt aðrar, telja að nú ættum við að gera það.
Það er eitthvað sem við verðum að fá fram hjá viðkomandi aðilum. Það skiptir máli í þessari umræðu hvers vegna menn telja að það sé óhætt að fara þessa vegferð núna en töldu það ekki á sínum tíma, vegna þess að reynslan er allt önnur. Við eigum nefnilega, frú forseti, að læra af reynslunni. Og hver er reynslan af því að hafa innleitt orkupakka eitt og tvö? Jú, hún er sú að raforkuverð hækkaði hér bæði til heimila og fyrirtækja. Við höfum sýnt fram á það. Það var talað um neytendavernd. Neytendaverndin skiptir sáralitlu máli vegna þess að það svarar varla kostnaði að skipta um raforkusala. Það eru mörg atriði í fyrri tíð orkupakka eitt og tvö (Forseti hringir.) sem mæla með því að stíga varlega til jarðar þegar kemur að orkupakka þrjú.