ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Þetta er einmitt mergurinn málsins, það ber að hlusta á þá sem hafa reynsluna, hafa þekkinguna. Eins og málshátturinn segir er það oft gott sem gamlir kveða. Auðvitað eigum við að hlusta á þessa menn sem núna eru algjörlega lausir við hagsmuni af málinu á einn eða annan hátt, þeir eru ekki að fara í framboð og eru ekki tengdir á neinn hátt einhverjum þeim hagsmunum sem gætu varpað skugga á það sem þeir hafa haldið fram, nema eins og ég sagði áðan, þeir hafa einlægan áhuga á viðgangi þjóðarinnar, að þjóðinni gangi vel o.s.frv. og að menn búi við góð kjör. Ég held að það sé sjónarmið sem hægt er að samsama sig við.
Það er mjög sterkur punktur í grein Sighvats Björgvinssonar sem ég var að enda við að lesa áðan, en hann spyr: Ef þetta skiptir ekki máli, ef þessi pakki breytir engu fyrir íslensku þjóðin, hvers vegna þá að afgreiða hann?
Greinar eins og þessar sem nú eru færðar fram hér í umræðunni dýpka umræðuna og þær auka skilning, sérstaklega þeirra sem eru langt frá málinu og eru háðir því að taka við upplýsingum frá öðrum. Þess vegna er nauðsynlegt að færa þessar greinar fram.