149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

störf þingsins.

[10:34]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Í fréttum liðinnar viku kom upp umræða í innlendum og erlendum fjölmiðlum um að ástæða væri til að breyta orðfæri okkar þegar við tölum um hitnun jarðar af mannavöldum og hætta að nota hugtök eins og loftslagsbreytingar, sem þykir vera nokkuð úrelt og einfaldlega of milt til að lýsa raunveruleikanum, sem er í raun hamfarahlýnun af mannavöldum.

Aðilar á Íslandi, til að mynda Landvernd, hafa hvatt til þessara breytinga hér á landi og hafa nú þegar einhverjir fjölmiðlar hér þegar tekið upp þetta breytta orðfæri, sem er gott. Ég legg til að við hv. þingmenn gerum slíkt hið sama og breytum orðalagi okkar hér í þingsal í umræðum um hitnun jarðar af mannavöldum. Auðvitað breytir það í sjálfu sér ekki öllu, en það er mikilvægt að við notum rétt og lýsandi orð í hverri umræðu.

Í því samhengi vekja hins vegar nýlegar fréttir áhyggjur af framtíðinni en forseti Bandaríkjanna virðist taka æ stærri skref í afneitun sinni á hamfarahlýnun jarðar, fyrst með því að draga Bandaríkin út úr Parísarsamkomulaginu og svo nýlega með því að neita að skrifa undir og koma þannig í veg fyrir sameiginlega yfirlýsingu Norðurskautsráðsins, vegna þess að þar var talað um áhrif hamfarahlýnunar á norðurslóðir.

Að sama skapi vekur það hins vegar bjartsýni hvernig ungmenni um allan heim hafa tekið höndum saman og mótmælt aðgerðaleysi stjórnvalda. Við eigum að hlusta á unga fólkið. Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram tillögu að grænum samfélagssáttmála sem taki til allra sviða þjóðfélagsins. En við þurfum að standa saman til að bjarga jörðinni og þó að við séum lítil þjóð berum við ábyrgð. Við þurfum að setja markið hærra og stíga fleiri og stærri skref, hraðar en við höfum áður áætlað. Orð eru til alls fyrst og orð geta sannarlega breytt öllu.