störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í frétt Hagstofunnar í morgun kemur fram sú mjög svo athyglisverða staðreynd að innflytjendur á íslenskum vinnumarkaði eru orðnir tæplega 40.000. Þeim hefur fjölgað mjög mikið á undanförnum 15 árum og telja nú alls nærri fimmtung íslensks vinnumarkaðar. Það kemur í sjálfu sér ekkert á óvart að innflytjendur hafi staðið undir stórum hluta þess efnahagsuppgangs sem við höfum gengið í gegnum á undanförnum árum. Það er mjög ánægjulegt að sjá þessar tölur og það er líka mjög ánægjulegt að sjá að þetta er þróun sem er eins um allt land, þannig að við sjáum innflytjendur standa undir vaxandi hluta atvinnulífs landið um kring.
Þetta undirstrikar mikilvægi innflytjenda fyrir íslenskt efnahagslíf, ómetanlegt framlag þeirra til efnahagsuppgangs okkar og einmitt hversu mikilvægt er að hlúa vel að innflytjendamálum, tryggja börnum innflytjenda góða og öfluga menntun, ekki hvað síst í íslenskri tungu, en ekki má heldur gleyma eigin móðurmáli.
Það er líka áhugavert að fylgjast með þegar þetta er sett í samband við þá umræðu sem hér hefur verið mjög lengi, um þær áskoranir sem fylgja öldrun íslensku þjóðarinnar og m.a. þá umræðu að hlutfall starfandi á vinnumarkaði á móti hlutfalli þeirra sem komin eru á eftirlaun fari verulega fækkandi. Þar af leiðandi þurfi jafnvel að grípa til mótvægisaðgerða eins og að hækka lífeyrisaldur og svo mætti áfram telja, og auðvitað að meiri áskorun muni felast í því að standa undir vaxandi heilbrigðiskostnaði þjóðarinnar. Þessi þróun undirstrikar einmitt að það er ekki óhjákvæmilegur veruleiki. Staðreyndin er raunar sú að á undanförnum árum hefur hlutfall starfandi á móti hlutfalli þeirra sem komnir eru á eftirlaun lítið breyst, einmitt vegna stóraukinnar fjölgunar innflytjenda á íslenskum vinnumarkaði, (Forseti hringir.) sem standa svo sannarlega undir batnandi lífskjörum þjóðarinnar af miklum myndarbrag.