149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

störf þingsins.

[10:38]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Virðulegur forseti. Hann teygir sig víða, áhuginn á málefnum norðurslóða, eins og drepið var á í ræðustól í gær. Fyrr í þessum mánuði voru haldnar tvær stórar og fjölþjóðlegra ráðstefnur um norðurskautsmál í kínversku stórborginni Shanghai. Norræn-kínversk norðurslóðaráðstefna fór fram í sjöunda sinn og í kjölfarið var hringborð norðurslóða haldið í borginni.

Sérstök áhersla var lögð á áhrif og áætlanir Kínverja á þessu sífellt mikilvægara heimssvæði. Hópur fólks úr ýmsum geirum var mættur til Shanghai frá Íslandi, m.a. sá sem hér stendur fyrir hönd Vestnorræna ráðsins. Mikið var rætt um hina svokölluðu nýju silkileið, pólarsilkileiðina, sem einnig gengur undir nafninu Belti og braut, en það eru risavaxnar áætlanir Kínverja sem tengja eiga landið betur við aðra hluta heimsins. Það sem að norðurslóðum snýr er siglingaleiðin sem kann að opnast vegna hlýnunar jarðar um norðurskautssvæðið, frá Austur-Asíu eftir ströndum Rússlands og til okkar í Norður-Atlantshafi. Skýrt kom í ljós á ráðstefnunum báðum að Kínverjar eru mjög með hugann við þessar framtíðaráætlanir og sitja raunar ekki með hendur í skauti.

Virðulegur forseti. Það skiptir vestnorrænu ríkin mjög miklu að fylgjast með þróuninni á norðurskautssvæðinu þar sem stóraukin skipaumferð eftir hinni nýju silkileið gæti kúvent stöðu okkar á mörgum sviðum. Þetta getur orðið uppspretta ýmissa tækifæra en jafnframt leitt til vandamála og snúinna álitaefna.

Þróunin er hröð og það er nauðsynlegt fyrir okkur að fylgjast náið með, leitast við að hafa áhrif. Það er alveg ljóst að gjörbreytt staða gæti blasað við hér á okkar heimssvæði fyrr en nokkurn grunar. Sem áheyrnaraðili að Norðurskautsráðinu hyggjumst við í Vestnorræna ráðinu ekki sitja hljóð hjá eða láta hluti koma okkur í opna skjöldu. Undir liggja sameiginlegir hagsmunir okkar allra á vestnorræna svæðinu þar sem samstarf ríkjanna þriggja er lykilatriði.