störf þingsins.
Virðulegi forseti. Skerðingardagurinn mikli. Tryggingastofnun hefur sent út pappírana sína. Við höfum heyrt minnst á það að fátækt fólk geti ekki beðið eftir réttlæti, hæstv. forsætisráðherra sagði meira að segja fyrir réttu einu og hálfu ári að fátækt fólk gæti ekki beðið lengur eftir réttlæti. En það er nákvæmlega það sem fátækt fólk er að gera núna og nú í boði málþófs á Alþingi Íslendinga, í boði þess að við erum hér með mjög mörg góð mál.
Ég ætla að nefna nokkur af þessum góðu málum. Ég ætla að nefna krónu á móti krónu skerðingar sem Píratar eru með og við erum að ná út úr nefnd. Ég ætla að nefna afnám skerðinga á atvinnutekjur aldraðra, mál sem er að koma út úr velferðarnefnd núna og er hugur í okkur að koma í þinglega meðferð. Ég ætla að nefna risamál Samfylkingarinnar í 17 liðum um velferð og bættan hag barna. Ég gæti haldið áfram lengi enda hefur hæstv. forseti bent á það að í nefndum liggja mál sem bíða eftir að fá að komast í þinglega meðferð á meðan Alþingi Íslendinga, æðsta ræðustól landsins, er haldið í gíslingu í nafni lýðræðis.
Ég vil taka fram, virðulegi forseti, að það var ég sem fór fyrst að tala um innleiðingu þriðja orkupakkans í þessu ræðupúlti . Ég hef alla tíð verið andsnúin innleiðingu þessa þriðja orkupakka. Ég hef í ræðu og riti talað um hvað ég er andsnúin þessum þriðja orkupakka, en það breytir ekki þeirri staðreynd að það hlýtur einhvern tímann að koma sá tímapunktur að maður viti hvenær vitjunartími manns er kominn og maður hætti að lemja hausnum í vegginn og hygla sjálfum sér daginn út og inn í einræðu á hinu háa Alþingi Íslendinga.
Ég skora á okkur öll. Það þýðir ekki í nafni lýðræðis að láta lítinn minni hluta haga sér eins og við höfum þurft að þola hér allan þennan tíma. Í rauninni hef ég ekki upplifað neina aðra tilfinningu en ofbeldi og vanlíðan yfir því að geta ekki sinnt þeim störfum sem ég var kosin til að fylgja. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)