störf þingsins.
Herra forseti. Biðtími eftir greiningu á börnum með ADHD er um eitt ár. Núna eru rúmlega 300 börn á biðlista hjá Þroska- og hegðunarstöðinni og löng bið eftir þeirri þjónustu sem mælt er fyrir eftir greiningu. Þroska- og hegðunarstöðin sér m.a. um að framkvæma greiningar á börnum með ADHD að 18 ára aldri. Viðvarandi óvissa hefur ríkt um framtíð starfsemi stöðvarinnar og hún hvorki haft nægilegt fjármagn né mannafla til að sinna þeim fjölda erinda sem berst og halda uppi þjónustu í samræmi við þarfir, svo sem þjónustu við börn á landsbyggðinni. Rúmlega fjórðungur tilvísana kemur þaðan.
Geðheilbrigðisþjónusta við börn ætti að vera í forgangi og raðað með fremstu málum í áætlunum stjórnvalda. Það er afar mikilvægt að koma í veg fyrir að biðlistar eftir þjónustu myndist og illviðráðanlegir fylgikvillar nái að myndast. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá árinu 2016 segir að geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga megi skipta í þrjú stig, grunn-, ítar- og sérþjónustu. Hverju þjónustustigi fyrir sig er ætlað að sinna tilteknum hópi sem glímir við misalvarlega geðheilsuvanda og kalla á ólík úrræði. Þar segir jafnframt að skortur á skýrri leiðsögn, skilvirku skipulagi og heildstæðri stefnu virðist hafa leitt til þess að hópar barna og unglinga hafa staðið uppi án skýrra úrræða.
Hlutverk annars stigs þjónustu, líkt og Þroska- og hegðunarstöðin veitir, hefur ekki verið skilgreint hérlendis þrátt fyrir að þrjú ár séu síðan skýrsla Ríkisendurskoðunar kom út þar sem bent var á þessa annmarka. Þetta sinnuleysi stjórnvalda er til skammar hvað varðar þessa nauðsynlegu þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Þetta er þjónusta sem einmitt ætti að vera í forgangi.