149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

störf þingsins.

[11:00]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Síðastliðið haust var ég málshefjandi hér á Alþingi í afar gagnlegri umræðu um vanda drengja og ungra karlmanna, sem svo sannarlega virðist ærinn. Ýmis teikn eru á lofti og hafa verið lengi um þennan vanda.

Ég nefndi í þeirri umræðu að unglingspiltar eiga miklu fremur við lestrarörðugleika að stríða við lok grunnskóla en stúlkur. Af innrituðum drengjum í framhaldsskólum falla 30% þeirra á brott úr skólanum meðan hlutfallið hjá stúlkum er 22%. Þrisvar til fjórum sinnum fleiri drengir en stúlkur greinast með einhverfu. Hlutur stúdenta meðal tvítugra er 62% meðal karla á meðan hlutfallið hjá ungum konum á þessum aldri en 86%. 36% háskólanema eru karlmenn, hin 64% eru konur. Einungis 30% þeirra sem ljúka mastersgráðu frá háskólum eru karlar. Ég endurtek: 30%. Hlutfall þess unga fólks sem hvorki er í námi né í vinnu er miklu hærra hjá körlum en konum. 78% þeirra sem létust af slysförum eitt árið og voru undir 35 ára voru karlmenn, 78% ungir karlmenn. Miklu fleiri karlar taka eigið líf en konur. 88–92% þeirra sem hljóta óskilorðsbundna dóma eru karlmenn. Í þeim tilfellum þegar forsjá er í höndum annars foreldris eftir skilnað eða sambúðarslit var á árinu 2011 forsjá í höndum eins föður á móti 58 mæðra.

Hverjar eru ástæður alls þessa, herra forseti? Er hér um náttúrulögmál að ræða? Þarf ekki (Forseti hringir.) einhverjar aðgerðir til að koma drengjum og ungum körlum til aðstoðar?