149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

störf þingsins.

[11:02]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Nú erum við að fara að taka til við endurskoðun fjármálastefnu ef allar fréttir um það eru réttar. Í lögum um opinber fjármál er talað um að forsendur séu fyrir því að breyta fjármálastefnu ef, með leyfi forseta, „grundvallarforsendur fjármálastefnu bresta eða fyrirsjáanlegt er að þær muni bresta vegna efnahagsáfalla, þjóðarvár eða annarra aðstæðna, sem ógerlegt er að bregðast við með tiltækum úrræðum ... “

Í greinargerð með frumvarpi um lög um opinber fjármál eru talin upp fleiri atriði eins og alvarleg skakkaföll í atvinnustarfsemi, sem gæti kannski átt við fall Wow air eða loðnubrestinn, ófyrirséður tekjusamdráttur, náttúruhamfarir eða þjóðarvá. En þessar útskýringar verða alltaf að vera í samhengi við efnahagsáfall eða þjóðarvá. Það er ekki útskýrt hvað það þýðir. Ef það á að koma endurskoðuð fjármálastefna núna er verið að búa til skýringu og því fylgja rök um það hvort þessar aðstæður, sem eru taldar upp, teljist til efnahagsáfalla eða þjóðarvár. Það er verið að setja ákveðið fordæmi, sem ég tel vera athugunarvert. Fjármálaráð á að gefa umsögn um þau rök. Ég hlakka líka til að sjá þá umsögn, hvort rökin standist miðað við gefnar forsendur.

Við eigum spennandi tíma í vændum varðandi afgreiðslu fjármálastefnu og fjármálaáætlunar. Það sem ég geri helst athugasemdir við er að það er fyrirsjáanlegt að miklar breytingar verði á fjármálaáætlun, um marga milljarða, tugi milljarða. 40 milljarðar eða eitthvað svoleiðis hefur verið nefnt.

Þetta eru breytingar rétt áður en við klárum að afgreiða fjármálaáætlun. Engar umsagnir. Við fáum væntanlega ekki marga gesti til að fjalla um þær breytingar þrátt fyrir að það verði væntanlega einhverjar skerðingar á bæði tekju- og gjaldahliðinni umfram afganginn sem gæti dekkað hluta af þeim.

Ég hvet ríkisstjórnina til að rökstyðja þessar breytingartillögur mjög vel, kalla til gesti ef þarf vegna þeirra breytinga sem eru gerðar umfram þann afgang (Forseti hringir.) sem líklega er verið að ganga á í breytingu á fjármálastefnu.