149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

störf þingsins.

[11:05]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Í ljósi ummæla síðasta ræðumanns, hv. þm. Björns Levís Gunnarssonar, er rétt að geta þess að breytingar sem boðaðar hafa verið á fjármálastefnu og fjármálaáætlun þurfa að fá eðlilega meðferð í þinginu. Ég hygg nú að margir hafi verið undir það búnir eftir umræðu undanfarinna vikna að gera þyrfti slíkar breytingar. Það er eðlilegt að þær fái eðlilegan tíma í ferlinu í fjárlaganefnd og eftir atvikum hér í þingsal.

Það verður þó hins vegar að minna á að með því fyrirkomulagi að fjármálaáætlun er til umræðu á hverju vori og tekin til endurskoðunar á hverju vori og fjárlagaumræða tekur síðan yfir á haustdögum, eru tækifærin til að ræða ríkisfjármálin miklu meiri en kannski nokkurn tímann hefur verið í þinginu áður. Ef við skoðum hlutina í heild hygg ég að með þessu nýja fyrirkomulagi, sem verið hefur býsna góð samstaða um að taka upp, erum við með fjárlagaumræðu og fjármálastefnu og fjármálaáætlunarumræðu í gangi nánast allt árið um kring, í staðinn fyrir að fjárlagaumræða takmarkaðist við tvo, þrjá mánuði að hausti eins og hér var áður. Það gerir það að verkum að þegar það fyrirkomulag er fyrir hendi verðum við að taka mið af því í störfum þingsins að ekki er hægt að hafa það þannig að það teygi sig óendanlega yfir allt. Það verður að setja þessu einhvern ramma, einhverjar hömlur, þannig að hægt sé (Forseti hringir.) að afgreiða mál á skynsamlegum tíma, þó auðvitað þannig að öll sjónarmið nái að koma fram.