ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Síðari umr. um þriðja orkupakkann fer nú fram á Alþingi. Mér sýnist á öllu að enn sé ótal spurningum ósvarað og mörgum spurningum illa svarað, að því er mér virðist. Mál eins og þetta, þar sem gríðarlegir hagsmunir liggja undir, framtíð okkar og hugsanlega forræði yfir okkar eigin orku er stóra spurningin, og spurningunni um hvort þingsályktunartillagan brjóti gegn stjórnarskrá verður að svara.
Það eru ekki mörg mál undanfarin ár sem hafa hreyft jafn mikið við Íslendingum. Það er langt síðan Alþingi var jafn ósammála þjóðinni og nú virðist vera. Skoðanakannanir segja a.m.k. til um það. Mitt minni segir að slíkt hafi síðast gerst þegar Icesave var til umræðu á Alþingi. Íslendingar hafa hingað til hinkrað við og verið tilbúnir að ræða í þaula ef nokkur vafi er á að íslenska stjórnarskráin liggi undir. Um þetta og margt annað snýst málið.
Mig langar til að rifja örlítið upp gang málsins á þessu þingi. Margir höfðu efasemdir um þingsályktunartillöguna þegar hún kom fram. Við í Miðflokknum vorum vissulega ekki einir á þingi með efasemdir. Það er alveg ljóst. Taugatitringur ýmissa þegar ljóst varð að ekki yrði hægt að troða málinu hér í gegn olli því hins vegar að reynt var að stoppa upp í gallaða þingsályktunartillögu með fyrirvörum sem virðast halda lítt og eitthvað er á reiki hvar þá er að finna. Hraðinn við að koma málinu í gegn, sem er vissulega miklum vafa undirorpið hvort standist stjórnarskrá og hvort þriðji orkupakkinn henti Íslendingum yfir höfuð, er óskiljanlegur.
Ég hef í huga að nefna nokkur þeirra vafaatriða sem reyndar hafa komið fram áður, en sjaldan er góð vísa of oft kveðin. Það að þetta mál liggi fyrir Alþingi vekur upp spurningar. Hver er tilgangurinn eiginlega? Hér er um að ræða tilskipun sem fjallar um valdheimildir ACER og að koma á fót eftirlitsaðila sem á eftir að hafa eftirlit með íslenskum raforkumarkaði. Hafi menn áhuga á eða telji mikla nauðsyn á að styrkja regluverkið um raforkumarkaðinn hér er ekkert því til fyrirstöðu að það verði gert. Tilskipun um breytingu á EES-samningnum þarf svo sannarlega ekki til.
Að formi til snýst þingsályktunartillagan um flutning á orku þvert á landamæri. Þetta á við í Evrópu og þar sem tök eru á að flytja orku með sæstreng milli landa. Þetta á ekki við um Íslendinga sem búa ekki að búnaði til að tengjast orkubúskap annarra þjóða, en sá búnaður er alla jafna kallaður sæstrengur. Við höfum undanþágur frá Evrópureglum með skipaskurði og járnbrautir eftir því sem best er vitað. Af hverju á slík undanþága ekki við í þessu efni þegar tengingin við Evrópu er ekki fyrir hendi?
Í umræðunni hafa verið nefndar helst tvær reglugerðir, þ.e. nr. 713, um nýja evrópska stofnun, samstarfsstofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði. Oft er vísað til skammstöfunar hennar á ensku, þ.e. ACER. Hin er um skilyrði fyrir aðgengi að neti fyrir raforkuviðskipti yfir landamæri og er nr. 714.
Ítarlegar greinargerðir liggja fyrir í málinu, eins og fram hefur komið. Í álitsgerð Stefáns Más Stefánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirsts, um stjórnskipuleg álitamál tengd framsali ríkisvalds til stofnunar ESB og EFTA vegna þriðja orkupakka ESB, er rauði þráðurinn varnaðarorð um að fyrirhugað framsal standist ekki ákvæði stjórnarskrárinnar. Segja þeir í niðurlagi álitsgerðarinnar það ekki vera fordæmi fyrir slíku valdframsali til þjóðlegra stofnana á grundvelli EES-samningsins.
Það er niðurstaða höfunda álitsgerðarinnar að verulegur vafi, eins og þeir orða það, leiki á því hvort framsal ákvörðunarvalds til ESA, samkvæmt 8. gr. reglugerðar nr. 713/2009, eins og ráðgert er að taka upp í EES-samningnum samkvæmt ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar frá 5. maí 2017, rúmist innan ákvæða stjórnarskrár lýðveldisins Íslands. Vísa höfundar til hinna sameiginlegu stjórnskipulegu viðmiðana sem líta beri til í þessum efnum og sérstaklega er tekið fram að sjónarmið á forsendum EES-samningsins, afmörkun framsalsins og víðfeðmi þess vegi þungt í þessu sambandi.
Höfundar vekja athygli á stöðu Eftirlitsstofnunar Evrópu, ESA, gagnvart þessari ACER stofnun. Hvað EFTA-ríkin snertir er gert ráð fyrir að Eftirlitsstofnunin geti farið með þær valdheimildir sem ACER eru veittar í reglugerð nr. 713, m.a. lagalega bindandi ákvarðanir er varða grunnvirki yfir landamæri. Grunnvirki er í þessu samhengi títtnefndur sæstrengur. Eftir sem áður er gert ráð fyrir að ACER hafi mikil áhrif á efni slíkra ákvarðana og skulu ákvarðanir ESA m.a. teknar á grundvelli draga sem ACER semur fyrir ESA. Segja höfundar að slíkt fyrirkomulag falli illa að tveggja stoða kerfi EES-samningsins sem er m.a. það viðmiðunaratriði sem litið er til við mat á því hvort framsal ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana rúmist innan stjórnarskrárinnar. Höfundar taka fram að ákvæði reglugerðar nr. 714, áður var talað um 713, kunni að vekja upp hliðstæð stjórnskipuleg álitaefni og heimildir ESA til að taka lagalega bindandi ákvarðanir samkvæmt 8. gr. reglugerðar nr. 713.
Ég vil leyfa mér að vekja athygli á því að höfundar álitsins, Stefán Már Stefánsson og Friðrik Árni Friðriksson Hirst, taka sérstaklega fyrir d-lið 1. mgr. 37. gr. tilskipunarinnar, nr. 72/2009, en samkvæmt því ákvæði er það meðal skyldna landsbundinna eftirlitsaðila í aðildarríkjunum að „fara að, og framkvæma, allar viðeigandi lagalega bindandi ákvarðanir [ACER] og framkvæmdastjórnarinnar“.
Umfjöllun höfunda um reglugerðir 713 og 714 auk ákvæðisins í 37. gr. tilskipunar nr. 72/2009 gerir að verkum að telja verður mjög varhugavert að samþykkja orkupakkann. Jafnvel mætti telja það vítavert. Höfundarnir, Stefán Már og Friðrik Árni segja það berum orðum hvað gerist ef við samþykkjum orkupakkann ekki.
Hér er bein tilvitnun, með leyfi forseta:
„Færi svo hins vegar svo að Ísland hafni því að aflétta hinum stjórnskipulega fyrirvara, þá leiðir af 103. gr. EES-samningsins að taka þyrfti málið aftur upp í sameiginlegu EES-nefndinni og leitast við að ná lausn þess. Þá tekur við málsmeðferð sem um getur í 102. gr. EES-samningsins. … Skal sameiginlega EES-nefndin leitast við að koma á samkomulagi um lausn sem aðilar geta sætt sig við svo að draga megi frestunina til baka við fyrsta tækifæri.“
Hæstv. forseti. Leiðin sem höfundar álitsgerðarinnar leggja m.a. fram er í anda málflutnings Miðflokksins. Hún lætur stjórnarskrána njóta vafans. Hún er varfærin og fullfær. Þessa leið ættum við að sjálfsögðu að fara. Ríkisstjórnin ætti að draga málið til baka og vísa því í sáttaferli á vettvangi sameiginlegu EES-nefndarinnar á grundvelli ákvæða EES-samningsins sjálfs. Það er ekki bara eðlilegt heldur ber okkur að gera það og láta þannig hagsmuni Íslands ætíð vera í fyrirrúmi. Við verðum að taka mark á þeim varnaðarorðum sem koma fram í álitsgerðinni og breyta samkvæmt því. Ber að túlka stjórnarskránni og þess vegna fullveldinu í hag, enda er það samkvæmt þeim eið sem við alþingismenn höfum undirritað.
Sú leið sem ríkisstjórnin og fylgifiskar hennar ætla að fara með því að fella á brott hinn stjórnskipulega fyrirvara með því að samþykkja þessa þingsályktunartillögu og takast á hendur með því þær þjóðréttarlegu skyldur sem því fylgja — það hefur ekki á nokkurn hátt verið sýnt fram á í þeim lögfræðilegu álitsgerðum sem fyrir liggja að þessi leið sé fær. Undanfarið, aðallega í fjölmiðlum — og jafnvel hefur verið ýjað að því á Alþingi — hefur því verið haldið fram að við sem vörum við þriðja orkupakkanum séum popúlistar, einangrunarsinnar og meira að segja hefur því verið haldið fram að EES-samningurinn sé í uppnámi.
Aðeins að stöðu EES-samningsins og samninga yfirleitt. EES-samningurinn hefur að mörgu leyti gagnast okkur vel enda eru samningar ekki gerðir nema gagnaðilar séu bærilega sáttir og báðir hafi hag að. Það má því segja um EES-samninginn að hann þjóni hagsmunum allra sem eiga aðild að honum. Það er engin ástæða til að álíta að samningurinn sé í uppnámi þótt við samþykkjum ekki breytingar á honum. Það er nákvæmlega það sem breyting á 4. viðauka við EES-samninginn er. Þessi 25 ára gamli samningur þarfnast örugglega einhvers konar endurskoðunar en sú endurskoðun þyrfti að sjálfsögðu að fara fram í sátt og aðkomu allra þeirra sem aðild eiga að honum. Það að hann sé í uppnámi er því miður hræðsluáróður. Það er hræðsluáróður þeirra sem sjá ekkert annað en Evrópusambandið og eru tilbúnir til að fórna sálinni til að komast þangað inn, reyndar í smáum skrefum en takmark þeirra er flestum ljóst.
Mig langar til að vitna í grein Aðalsteins J. Magnússonar, líffræðing og hagfræðing, í Fréttablaðinu 16. maí síðastliðinn, með leyfi forseta:
„Í dag hef ég þrátt fyrir fyrri hugmyndir og hagfræðimenntun snúist gegn „einfaldri“ tengingu við sameiginlegan ESB-markað, þ.e. undir þeim tilskipunum sem núna eru til umræðu og regluverki, nema að það sé algerlega á okkar forsendum. Hvers vegna? Tenging á öðrum forsendum en okkar einvörðungu gæti leitt til þess að við verðum á endanum með afar takmarkaða stjórn, þar sem við verðum kanínan í því sem á ensku er kallað kanínu- og hrossakássa. Uppskriftin er ein kanína og eitt hross. Mér geðjast engan veginn að þeirri matseld.“
Í þessu liggur hjá höfundi greinarinnar sá skilningur að við sem örþjóð verðum að gæta að hverju skrefi sem við tökum. Við viljum ekki undir neinum kringumstæðum vera áhrifalaus og máttvana. Með hliðsjón af þessu og mörgu öðru ber okkur að hafna þingsályktunartillögunni um þriðja orkupakkann og vísa málinu til sameiginlegu EES-nefndarinnar. Til þess höfum við að sjálfsögðu fulla heimild.
Við þurfum að koma sjónarmiðum okkar fram. Þeim hefur illa verið haldið á lofti fram að þessu.
Ég vek athygli á öllum þeim sem gera miklar athugasemdir. Þar má nefna ASÍ, formann VR, Bændasamtökin og marga fleiri og auk þess sem skoðanakannanir sýna mikla andstöðu við þetta ferli. Ég vil einnig vekja athygli á þverpólitísku samtökunum sem heita Orkan okkar. Innan þeirra er stór hópur fólks sem hefur gert alvarlegar athugasemdir, m.a. fyrrverandi ráðherrar og þingmenn. Það eru ótal sviðsmyndir sem við gætum staðið frammi fyrir verði þingsályktunartillagan samþykkt.
Ein er þessi. Í þriðju orkutilskipun ESB, þ.e. þriðja orkupakkanum, er tekið fram að stjórnvöldum einstakra ríkja sem tilheyra innri orkumarkaði ESB er heimilt að standa í vegi fyrir tengingum á milli landa. Evrópusambandið ákvað árið 2007 að leggja aukna áherslu á tengingu milli landa og stofna til þess orkustofnun ESB, þ.e. ACER. Það er gert með reglugerðum árið 2009 og kallast þriðji orkupakkinn og er enn skerpt á því með reglugerð nr. 347/2013, sem er hluti fjórða orkupakkans.
Frá níunda og tíunda áratug síðustu aldar stóð ESB frammi fyrir krefjandi verkefnum, þ.e. þegar ríki í Austur-Evrópu byrjuðu að ganga í ríkjasamband ESB. Þessi ríki voru meira og minna með alla innviði í rúst og þar með talið raforkumál sín, hvort sem var framleiðsla eða dreifing á raforku. Ekkert af þessu átti við Ísland, sem hefur þróað sín raforkumál með miklum ágætum allar götur frá því 1936 þegar virkjanir við Sogið voru teknar í notkun. Allar raforkutilskipanir Evrópusambandsins tóku því í byrjun mið af vanþróuðum raforkumörkuðum sem nú hin síðari ár hefur færst yfir í fyrirsjáanlegan raforkuskort í Vestur-Evrópu vegna kröfu um raforkuframleiðslu á vistvænan hátt.
Ekkert af þessum þáttum á við íslenskan raforkumarkað enda hafa þessar tilskipanir aldrei gert neitt fyrir íslenska neytendur, annað en að auka kostnað með aukinni skriffinnsku og kostnaði í íslenskri raforkuframleiðslu, sem var með lögum gert skylt að greiða eigendum sínum, þ.e. þjóðinni, arð á hverju ári með hagstæðu raforkuverði. Þessu var breytt með innleiðingu orkupakka tvö. Landsvirkjun hefur undirbúið lagningu sæstrengs frá árinu 2011. Fyrst á eigin forsendum en í dag á forsendum þriðja orkupakkans, þ.e. eftir innleiðingu hans.
Það er stefna Evrópusambandsins að allur orkugeirinn skuli vera í eigu einkaaðila. Evrópusambandinu er ekki eins illa við neitt og rekstur í eigu samfélagsins; opinberan rekstur. Við skulum hafa það í huga að EES-samningurinn hefur sífellt verið að aðlagast stefnu Evrópusambandsins. Við verðum því að gæta okkar.
Að þessu sögðu vil ég leggja áherslu á að tillögunni verði hafnað og henni vísað til baka og hún fái eðlilega og skynsamlega málsmeðferð og málið komi síðan fullbúið til okkar aftur þar sem báðir aðilar máls geti verið sáttir við gerð samningsins.