149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[11:33]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við áttum hérna ágætisspjall í fyrri umr. um hvernig þessi þingsályktunartillaga snerist um neytendavernd, gagnsæi, sjálfstætt eftirlit, orkuöryggi og ýmislegt svoleiðis. Ýmsum fullyrðingum hefur verið haldið fram um þetta mál í umræðunni og af því að ég þekki hv. þingmann ekki að neinu öðru en bara heiðarlegum andsvörum við mig í þinginu og treysti honum til að svara því skýrt og skilmerkilega langar mig til að spyrja hv. þingmann hvort hann væri tilbúinn til þess að endurskoða afstöðu sína ef rök koma fram gegn þessum málflutningi annars vegar. Hins vegar fjallaði hv. þingmaður nokkuð vel um ferlið gagnvart eftirliti með grunnvirkjum yfir landamæri, þ.e. sæstreng, hvernig það er í höndum ESA og maður getur fengið álit frá ACER. Þetta var í inntaki ræðunnar. En það kom tilvitnun frá hv. þingmanni í ræðu hans sem ég tel ranga. Það er tilvitnunin: „ACER hefur eftirlit með íslenskum raforkumarkaði.“ Miðað við lýsingu á því hvernig ESA hefur eftirlit með grunnvirkjum yfir landamæri en ekki íslenskum raforkumarkaði — er þessi fullyrðing ekki röng?