149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[11:35]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir andsvarið. Fyrsta spurningin var um endurskoðun. Það sem við höfum verið að kalla eftir er að þessir fyrirvarar verði sýnilegir en við höfum ekki séð þá og þar af leiðandi vitum við ekki um hvað þeir snúast í raun og veru þó að menn tali um það. Svo er líka að þegar gerðir eru fyrirvarar um samning hljóta báðir aðilar samningsins að kvitta fyrir þann fyrirvara en ekki bara annar aðilinn, eins og virðist vera í þessu tilfelli, að hann sé í reglugerðum eða einhvers staðar í þingsályktun eða annars staðar sem er þá bara, eins og sagt hefur verið, til heimabrúks. Fyrirvarar eru bara ógagnsæir og gagnslausir ef þeir eru gerðir einungis af öðrum aðilanum og hinn aðilinn skrifar ekki undir.

Varðandi spurningu um fullyrðingu um ACER get ég í raun og veru ekki sagt að það sé fullyrðing heldur var ég að vitna þarna í grein, að mig minnir, í ræðunni og ég þarf að átta mig aðeins betur á þeirri spurningu svo ég geti svarað henni.