149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[11:37]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Tilvitnunin var: „ACER hefur eftirlit með íslenskum raforkumarkaði.“

Í ræðu hv. þingmanns var það útskýrt einmitt hvernig það er ESA sem hefur eftirlit með grunnvirkjum yfir landamæri en ekki með íslenskum raforkumarkaði þannig að þarna stangast á ákveðnar staðreyndir varðandi það hvernig textinn er í tillögunni og það hvað íslenskur raforkumarkaður er síðan hins vegar.

Ég spurði ekki um fyrirvarana en mér finnst mjög áhugavert að hv. þingmaður segist ekki hafa séð fyrirvarana af því að sérstakt þingskjal hefur legið frammi fyrir Alþingi síðan í byrjun apríl.