149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[11:37]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hef séð fyrirvarana en það er þessi lagalega hlið þeirra sem við bíðum eftir. Varðandi ACER og ESA er ESA yfir ACER. Eða öfugt? Hvernig er það? (Gripið fram í.) Það er öfugt, já, og verð ég bara að viðurkenna að ég er ekki alveg nógu vel að mér í þeim lagalega þætti málsins. Þetta er það sem ég las upp og skrifaði niður og ég treysti þeim sem komu þessu á blað fyllilega fyrir því að þeir fari með rétt mál.