149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[12:03]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Það er eitt af því sem hefur komið til greina, það hefur verið grunur um að lagalegi fyrirvarinn felist í þessari sameiginlegu yfirlýsingu. Ef ég hef skilið hv. þingmann rétt, sem ég þakka fyrir spurninguna, þá á hún við yfirlýsingu ráðherra og eins af orkumálastjórum Evrópu, Miguels Arias Cañetes þar sem lýst var yfir sameiginlegum skilningi á sérstöðu Íslands.

Hvað felst í því nákvæmlega, herra forseti, að menn hittist einhvers staðar úti í Evrópu, ráðherra og einhver háttsettur maður í orkumálastofnun Evrópu, og lýsi því yfir að Ísland sé langt úti í hafi? Væntanlega hefur honum verið bent á það að Ísland væri eyja langt úti í hafi og væru engar rafmagnslínur þangað. Þeir lýsa yfir sameiginlegum skilningi á því að það sé sérstaða, þetta er eyja, engar raflínur liggja út í þessa eyju. Þess vegna hafi mörg ákvæði í orkutilskipuninni enga þýðingu fyrir þetta mál. Það er augljóst, herra forseti.

Hvaða þýðingu hefur þetta? Er þetta lagalegur fyrirvari? Nei, þetta eru engin lög. Það er ekki verið að setja nein lög þarna, þeir eru ekki að gera það þó að þeir ræði saman og staðfesti sérstöðu Íslands og alkunnar staðreyndir í því sambandi. Þetta eru ekki lög og þetta getur ekki verið lagalegur fyrirvari en auðvitað er þetta yfirlýsing og hefur ákveðið gildi. Þetta hefur fyrst og fremst, herra forseti, pólitískt gildi en ekki lagalegt.