ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Önnu Kolbrúnu Árnadóttur fyrir þessar vangaveltur og spurningu. Hún ræddi um hreina orku í Evrópusambandinu. Já, það er rétt hjá hv. þingmanni að innan Evrópusambandsins hefur lengi verið unnið að því að auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa í framleiðslu landanna. En það vill svo til að á vissum svæðum í Evrópu er lítið um slíka orkugjafa og þá þarf að kaupa orkuna annars staðar frá og jafnvel langt að.
Regluverkið, bæði orkutilskipanirnar, fyrsti orkupakkinn, annar og þriðji og fleira, leggur raunverulega brautina fyrir framtíðina, sem er auðvitað falleg og góð. Tilgangurinn er góður en það eru skuggahliðar á honum vegna þess að orkuverð í Evrópu er mjög hátt, líka til almennings. Við á Íslandi höfum verið með lágt orkuverð. Við höfum byggt þetta kerfi upp sjálf, þjóðin, ríkið, og það er í opinberri eigu, bæði dreifikerfi og virkjanir. Landsmenn vænta þess í framtíðinni að njóta góðs af þessari uppbyggingu. En það þarf ekki að vera að það þjóni hagsmunum Evrópusambandsins sem horfir til framtíðar, til iðnaðar og uppbyggingar í Evrópu með hreinni orku sem hún gæti fengið úr vindmyllugörðum eða frá Noregi og hugsanlega frá Íslandi úr endurnýjanlegum orkugjöfum sem hér er nóg af. Hvernig gera menn þetta? Þeir innleiða regluverk eins og ég hef verið að nefna og mun nefna áfram um sölu á upprunaábyrgðum, þ.e. þannig að þetta líti vel út og auki hlut endurnýjanlegra orkugjafa með þeim hætti að hækka verðið á hreinu orkunni til að menn gangi fremur í það að minnka hlut óhreinnar orku.