149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[12:09]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M):

Herra forseti. Á vefsíðu RÚV birtist í morgun frétt undir yfirskriftinni „Yfir 2.100 ræður og andsvör Miðflokks á viku“. Þessi frétt er mjög ítarleg og geymir tölulegar upplýsingar um ræðufjölda og fjölda andsvara, sundurliðað eftir einstökum þingmönnum og varaþingmönnum Miðflokksins sem hafa tekið þátt í þessari umræðu og greinilegt að þessi frétt er unnin af mikilli iðni og samviskusemi. Svo fylgir mynd af nokkrum þingmönnum og það er auðvitað alltaf mjög gaman að fá af sér mynd í fjölmiðlum. En ég verð að leyfa mér að spyrja, herra forseti: Takmarkast umfjöllun og fréttaflutningur ríkisfjölmiðils, sem er þannig settur að hann nýtur umtalsverðra framlaga, ætli það sé ekki nær 5.000 milljónum á ári en um 4.000, þegar um er að ræða stórt mál sem varðar m.a. stjórnarskrá, stöðu okkar í mikilvægu samstarfi þjóða Evrópuþjóða og snertir auðlindir þjóðarinnar, við tölulegar upplýsingar um þá hluti sem ég nefndi?

Herra forseti. Þessi umræða hefur verið málefnaleg, hún hefur verið upplýsandi og hún hefur verið greinandi. Við höfum lagt okkur fram um að rannsaka þetta mál, rannsaka þá texta sem liggja til grundvallar í málinu, þar á meðal þær lögfræðilegu álitsgerðir sem liggja til grundvallar, reglugerðir sem okkur er ætlað að innleiða og fjölmarga aðra þætti.

Má ég leyfa mér að nefna, herra forseti, að við höfum rýnt af miklu kappi í hinn lagalega fyrirvara og við höfum haft forgöngu um leit að þessum fyrirvara og haft til þess mannskap sem hefur ákveðna sérhæfingu í krafti lögfræðilegrar þekkingar og forystustarfa í lögregluliði landsins, þá á ég auðvitað við hv. þm. Karl Gauta Hjaltason.

Það eru mjög stórar spurningar sem snúa að hinum lagalega fyrirvara. Í fyrsta lagi: Hvar er hann? Í annan stað: Hvað á hann að gera? Ég held að við vitum nokkurn veginn hvað hann á að gera. Hann á að leysa úr hinum stjórnskipulega vanda með því að skjóta honum á frest, en hann má heldur ekki vera þannig að hann setji okkur í vanda gagnvart samstarfinu sem við höfum undirgengist og þeim þjóðréttarlegu skuldbindingum sem við höfum axlað. Þess vegna er mjög mikilvægt að lögð sé fram lögfræðileg álitsgerð og greining á því hvernig fyrirvarinn þarf að vera, a.m.k. að forminu til. Efni hans er dregið upp í áliti Friðriks Árna Friðrikssonar Hirsts og Stefáns Más Stefánssonar, það er gert á tveimur stöðum í álitinu, þar sem þeir segja að þriðji orkupakkinn verði innleiddur í íslenskan rétt en með lagalegum fyrirvara um að ákvæði hans um grunnvirki yfir landamæri, t.d. 8. gr. reglugerðar nr. 713/2009, öðlist ekki gildi enda sé slíkum grunnvirkjum ekki fyrir að fara hér á landi.

Það má því segja að búið sé að leggja línurnar um það hvert efni fyrirvarans eigi að vera. En eins og allir vita þá er eitt efni og annað form og formið skiptir máli, sér í lagi ef á þessi mál kynni að reyna fyrir dómstólum. Þeir hafa vakið athygli á því að það gætu a.m.k. tvenns konar mál risið fyrir dómstólum, til að mynda er það gert í viðtali á mbl.is við Friðrik Árna Friðriksson Hirst, þar sem hann segir ekki útilokað að Eftirlitsstofnun EFTA, sem er skammstöfuð ESA, teldi ástæðu til þess að höfða samningsbrotamál fyrir EFTA-dómstólnum á þeirri forsendu að Íslandi bæri að innleiða þriðja orkupakkann að fullu í landslög. Sömuleiðis segir hann að það væri mögulegt að einstaklingar eða lögaðilar höfðuðu (Forseti hringir.) skaðabótamál gegn íslenska ríkinu. Spurningarnar eru fjölmargar og ég hef ekki haft tækifæri til að nefna nema örfáar en mun nefna fleiri (Forseti hringir.) í næstu ræðu, herra forseti.