149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[12:14]
Horfa

Forseti (Guðjón S. Brjánsson):

Hér er flest óbreytt. Tveir hv. þingmenn hafa óskað eftir því að veita andsvar. Forseti vill hvetja hv. þingmenn til að stilla andsvörum enn frekar í hóf og stytta umræðuna þannig að freista megi þess að ljúka henni svo fljótt sem verða má, en undirstrikar eftir sem áður að málfrelsið er fyrir hendi og tjáningarfrelsið að fullu.