149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[12:29]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er rétt sem hann kom inn á í sinni ræðu og hefur áður minnst á að svörin hafa verið frekar fátækleg um lagalega fyrirvarann svokallaða og reyndar fátækleg svör við öllum okkar fjölmörgum spurningum. Ég var með einar 18 hér á blaði eingöngu varðandi fjórða orkupakkann.

Maður veltir fyrir sér hvort það sé ekki réttmæt ábending, ég ætla ekki að nota orðið krafa, frá þingmönnum Miðflokksins að skynsamlegt sé að skoða málið í heild og meta t.d., af því að hv. þingmaður hefur nefnt hættu á að íslenska ríkið verði dregið fyrir EFTA-dómstólinn, hvort einhver atriði í fjórða orkupakkanum auki líkurnar á því að svo geti orðið, einhverjar breytingar sem gætu ýtt undir það, hvati sem mögulega verður til. Þó svo að einhverjir vilji horfa á pakkana sem sérstök box, tvö, þrjú og fjögur o.s.frv., þá er samfella í þessu sem stefnt er að innan Evrópusambandsins. Það er eðlilegt að velta því fyrir sér. Því ber ég upp þá spurningu hvort það sé ekki skynsamlegt að skoða heildarmyndina þó ekki væri nema bara varðandi þetta atriði.

Síðan er annað. Við höfum heldur ekki fengið nein viðbrögð við því sem lögmaðurinn Eyjólfur Ármannsson í Noregi varar við í sinni umsögn, þ.e. að verið er að innleiða orkustefnu Evrópusambandsins á sama tíma og Ísland hefur ekki mótað orkustefnu. Það kemur í veg fyrir að hægt sé að vega og meta hagsmunina út frá þeim ólíku stefnum sem þarna er í raun verið að leggja á borðið.