149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[12:49]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þetta er prýðisgóð spurning hjá hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Það er fyrst að taka til rannsóknarstörf hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar sem enn hafa ekki borið árangur þrátt fyrir mikinn vilja. Ég held að það sé ekkert röng niðurstaða þessarar rannsóknarvinnu að fyrirvararnir finnist ekki, enda fjalla þeir, eins og ég skil það, um sæstreng. Sæstreng er ekki að finna í orkupakka þrjú. Hins vegar hef ég ekki skoðað málið það djúpt að ég viti hvort sæstreng sé að finna í orkupakka fjögur. Og þá er spurningin: Munum við hafa eitthvað um orkupakka fjögur að segja þegar við verðum komin þar inn með aðild að innri markaði ESB og þar með beri okkur að hlíta því ef ESB ætlar að leggja sæstreng til Íslands? Ég hef valið að horfa á þetta þannig að það erum ekki við sem leggjum sæstreng frá Íslandi heldur þurfum við miklu frekar að setja skorður, að verði sæstrengur lagður til Íslands þá verði það á okkar forsendum. Ég vil halda því fram að það sé ekki eðlileg framganga málsins að ætla næsta þingi eða þarnæsta þingi eða yfirleitt framtíðarþingum að taka ákvörðun um hvort það verði eða ekki. Okkur ber að klára málið núna.