149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[12:53]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þetta er alveg hárrétt. Auðvitað ýtir innleiðing orkupakka þrjú undir frekari áætlanir um að leggja sæstreng. Með því erum við orðin hluti af sameiginlegum orkumarkaði og þar með getum við lítið sagt þegar Evrópu vantar hreina orku sem finnst hér, þótt ég geri mér grein fyrir að þeir vilji einnig sækja hreina orku til Noregs.

Nú eru einkaaðilar þegar búnir að fjárfesta og leggja mjög mikla fjármuni í það að leggja sæstreng til landsins, bæði innlendir og erlendir aðilar. Hv. þingmaður vísaði í frétt í Sunday Times og það er rétt að þar kom fram að sá aðili sem rætt var við hélt því fram að hann vantaði ekkert annað en stimpil frá breskum stjórnvöldum. Hann fjallaði ekkert um að íslensk stjórnvöld væru með í ráðum. Það segir okkur það eitt að þá erum við orðin hluti af þessum markaði og þá kemur strengur til Íslands. Það er alltaf þetta sem ég er með í huga. Við erum þegar orðin hluti af þessu regluverki. Við erum hluti af bandalaginu, okkur ber að leggja það af mörkum að skaffa hreina orku af því að okkur ber að minnka kolefnisspor allra. Það liggur nokkuð ljóst fyrir hver fyrirætlunin er.