um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég brá mér frá í morgun og fékk þá svona ljómandi skemmtilega kveðju frá forseta. Okkur Miðflokksfólkinu er margt til lista lagt og margt vel gefið, en við stjórnum ekki fundum Alþingis. Það gerir forseti þingsins, sem er margreyndur og þekktur fyrir ríka tjáningarþörf í gegnum tíðina og ætti þá að skilja þau okkar sem hafa sömu þörf fyrir að tjá okkur ríkulega um mál sem skiptir miklu máli.
Ég veit ekki betur en að boðið hafi verið upp á að þetta mál yrði tekið til hliðar á einhverjum tímapunkti og mikilvæg mál sett fyrir framan til að þau megi afgreiða. Ég hef verið hér nokkrar nætur og ég get ekki séð að við höfum truflað nætursvefn nokkurs manns eða truflað þingstörfin á nokkurn einasta hátt þessi kvöld og nætur og þá aukadaga sem settir hafa verið. Mig fýsir því að (Forseti hringir.) beina því til forseta að hann skuli íhuga að hægt sé að taka þetta mál til hliðar og setja önnur mál á dagskrá.