um fundarstjórn.
Forseti hefur útskýrt það nokkrum sinnum undir þessari lotu að þegar þingmenn þurfa að tjá sig mikið er lítið annað að gera en að bregðast við því með því að lengja fundi og bjóða þeim upp á tækifæri til þess. (Gripið fram í.) Forseti dregur ekki til baka ummæli sín frá því í morgun, hann hafði ástæðu til að ætla og bindur vonir við að þær rúmu 90 klukkustundir sem þingmenn Miðflokksins hafa notað til að tjá sig um þetta mál fari nú að duga til að þeir komi afstöðu sinni á framfæri og geri grein fyrir sjónarmiðum sínum í þessu máli. Svo ríkulegan tíma hefur einn þingflokkur sennilega aldrei fengið í þingsögunni til að gera grein fyrir afstöðu sinni til máls. Einhvern tímann ætti slíkt þá að vera tæmt og ætti þá að vera hægt að ganga til afgreiðslu á málinu þannig að þingviljinn ráði niðurstöðunni. En hann gerir það ekki á meðan komið er í veg fyrir að málið gangi til atkvæða. Í því er fólgin ábyrgð þeirra sem þess eru valdir.