149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[13:56]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Forseti. Hv. þm Anna Kolbrún Árnadóttir setur mig í smávanda vegna þess að nú spyr hún mig um atriði sem ég ætlaði að koma inn á í næstu ræðu minni og ljóstra þar upp um ákveðin mál, koma með fréttir, enn eina nýju fréttina inn í þessa umræðu. En fyrst hv. þingmaður spyr get ég að sjálfsögðu ekki vikist undan því að svara og get upplýst um það að mér skilst að búið sé að kynna fjórða orkupakkann fyrir ríkisstjórn Noregs. Nú sé ætlast til þess að ríkisstjórnin og norska þingið innleiði fjórða orkupakkann á þeim forsendum að búið sé að innleiða þann þriðja. Svo virðist þó sem ríkisstjórn Noregs ætli að bíða með að taka þetta til umræðu í norska þinginu þar til íslenska þingið er búið að afgreiða þriðja orkupakkann.

Hér er enn eitt dæmið um það hversu samhangandi þetta er allt saman og enn ein áminningin um hversu undarlegt það er að íslenska ríkisstjórnin virðist annaðhvort ekki meðvituð um efni fjórða orkupakkans eða ekki vilja upplýsa þingið um innihald pakkans. Svo heyrum við af því að einhverjir aðilar úti í bæ hafi fengið kynningu á þessu og nú mun það vera staðfest að það sé formlega búið að afhenda ríkisstjórn Noregs fjórða orkupakkann til meðferðar. Þar bíða menn væntanlega bara eftir því að stjórnarmeirihlutinn hér og stuðningsflokkar hans nái að knýja þetta mál í gegnum íslenska þingið svoleiðis að menn telji sér óhætt að fara í umræðuna um fjórða pakkann í Noregi.