ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Í þessum tíðindum felast heilmiklar fréttir fyrir okkur og sérstaklega fyrir landsmenn alla á Íslandi. Þá er spurning hvort íslenska ríkisstjórnin verði ekki svolítið að spýta í lófana og fara að svara spurningum okkar til að við getum komist að einhverri niðurstöðu um hvernig við viljum haga okkar málum. Inn í þetta hlýtur að fléttast þessi dagsetning, 23. september, þegar taka á fyrir innleiðingarferli þeirra á orkupakka þrjú. Það er ekkert síður verið að keyra málið í gegn í Noregi en hér og auðvitað hlýtur þetta allt að hanga saman. Þá er spurningin: Vega hagsmunir Noregs þyngra en hagsmunir Íslands? Ég segi auðvitað hagsmunir Íslands en það er ekki víst og mér sýnist ríkisstjórnin ekki sammála mér. Mér sýnist ríkisstjórn Íslands ætla að gera allt sem hún getur til að þóknast þeirri norsku.
Spurningin er: Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að hægt sé að leiða þetta mál til niðurstöðu? Við vitum að hæstv. ráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, hefur talað um að fresta málinu til haustsins. Er það góð hugmynd?