ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Fyrst út af athugasemd hv. þingmanns um hagsmuni Íslands annars vegar og Noregs hins vegar og samskipti ríkisstjórna landanna, þá er ég þeirrar skoðunar að hagsmunir þessara tveggja landa í þessu máli a.m.k. geti farið mjög vel saman og fari vel saman. Þar byggi ég m.a. á norsku fyrirvörunum sem sýna einmitt hvaða atriðum Norðmenn hafa áhyggjur af og sú upptalning er alveg í samræmi við áhyggjur okkar þó að hjá okkur bætist aðeins við þetta vegna annarra aðstæðna. En allt það sem Norðmenn biðja um undanþágur frá eru atriði sem við Íslendingar myndum líka æskja þess að fá undanþágur frá.
Samspil norsku ríkisstjórnarinnar við þá íslensku er hins vegar mjög áhugavert. Það verður að hafa það í huga að sérstaklega norski Hægri flokkurinn, flokkur forsætisráðherrans Ernu Solberg, er mjög Evrópusinnaður flokkur og norskir þingmenn eru að jafnaði held ég að mér sé óhætt að segja mun Evrópusinnaðri en landsmenn þar, þó sérstaklega þessi Hægri flokkur.
Hér á Íslandi erum við hins vegar með ríkisstjórn sem er skipuð flokkum sem hafa gefið sig út fyrir að vera andstæðingar Evrópusambandsins eða Evrópusambandsaðildar. Þeir keppast hins vegar nú við að þvinga mál í gegnum íslenska þingið til að þjónusta Evrópuflokkinn í Noregi og þá auðvitað Evrópusambandið um leið. Með því er ekki verið að gera almenningi í Noregi neinn greiða. Það er kannski verið að gera þessum flokki greiða.
Svo ég svari að lokum spurningu hv. þingmanns tel ég einsýnt að treysti menn sér ekki til að vísa málinu strax til sameiginlegu EES-nefndarinnar, sem væri náttúrlega best, eigi að fresta málinu fram á haustið (Forseti hringir.) og bíða þeirra upplýsinga sem eru í vændum.