149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[14:02]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að koma hingað í pontu og biðja Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, afsökunar á því ónæði og áreiti sem hann hefur orðið fyrir vegna þess að hann tók undir málflutning Miðflokksins. Það er í sjálfu sér afskaplega dapurlegt að hann skyldi verða fyrir því að verða úthrópaður fyrir að taka undir þau sjónarmið sem fram hafa komið í málflutningi Miðflokksmanna að orkupakka þrjú verði ýtt til hliðar og hann geymdur til haustsins þannig að hægt sé að gaumgæfa hlutina betur. Ég vona að þetta fæli hvorki hann né aðra frá því að taka undir góð verk sem Miðflokkurinn hefur á takteinum og stendur fyrir.

Mig langar að geta hér um grein í Kjarnanum í morgun sem er eftir Harald Ólafsson og heitir: Hvers vegna á að fresta orkupakkamálinu? Með leyfi forseta, segir Haraldur Ólafsson:

„Alþingismenn hafa talað nokkuð lengi um orkulagabálkinn. Þótt umræðan sé löng í klukkustundum talið er ekki um eintómar endurtekningar eða merkingarleysu að ræða. Málið er furðu flókið og á sér marga anga. Sífellt koma fleiri þættir upp á yfirborðið og fleiri spurningar sem er ósvarað. Skynsamlegast er að hætta við málið en að öðrum kosti að fresta því til hausts. Í því sambandi ætti Alþingi að hafa eftirfarandi í huga:

1. Fjölmargar spurningar hafa komið fram á Alþingi að undanförnu, bæði að degi til og að næturlagi. Spurningarnar lúta að margháttuðum afleiðingum þess að gangast undir orkulagabálk Evrópusambandsins, afleiðingum hans í orkumálum fyrir atvinnu, náttúru og umhverfi, utanríkisviðskipti og íslenskt samfélag í heild sinni. Þá eru meintir fyrirvarar sveipaðir dulúð svo vægt sé til orða tekið. Stjórnvöld sem vilja láta taka sig alvarlega hljóta að reyna að svara þeim spurningum sem er ósvarað áður en tekið er skref sem erfitt verður að stíga til baka.

2. Mikill meiri hluti þeirra Íslendinga sem afstöðu taka er andvígur því að orkubálkurinn verði leiddur í lög. Gjáin milli þings og þjóðar er með dýpsta móti í þessu máli. Þann hnút má leysa með því að blása til þjóðaratkvæðagreiðslu. Séu á því annmarkar er lágmarkskrafa að málinu verði frestað til hausts svo stjórnvöldum gefist tími til að sannfæra þjóðina um að málstaður þeirra sé góður.

3. Samþykkt orkulagabálksins í norska Stórþinginu verður tekin fyrir 23. september nk. Verði sú samþykkt dæmd ólögmæt bendir allt til að málið gufi upp, Ísland og Noregur verði utan raforkubandalags Evrópu, öllum að meinalausu og mörgum til góðs. Gott ráð er því að bíða úrskurðarins í Noregi.“

Þess má geta að Haraldur Ólafsson, þessi ágæti maður, er einn forsvarsmanna Orkunnar okkar og formaður Heimssýnar. Það hefur komið fram í máli okkar margra hér að fólk fylgist með umræðunni og þessi ágæti pistill Haraldar er einmitt dæmi um það að fólki er ekki sama, almenningi er ekki sama, þjóðinni stendur ekki á sama. Þess vegna er nauðsynlegt fyrir okkur að halda áfram að reifa þetta mál. Líkt og Haraldur bendir réttilega á í pistli sínum frá því í morgun hefur umræðan dýpkað, málið hefur dýpkað. Fram hafa komið ótal spurningar sem enginn hefur verið til að svara. Í sjálfu sér staðfesta orð hans það sem við höfum haldið fram í ræðum, mörg, að málið sé flausturslega framsett og illa unnið og að það beri að taka það til hliðar, fresta því til haustsins þannig, eins og Haraldur segir, að meiri hlutanum á Alþingi gefist kostur á því að kynna málið betur fyrir þjóðinni. Það hefur verið sagt hér af nokkru yfirlæti að þeir sem séu líklegastir til að styðja þriðja orkupakkann séu þeir sem hafa kynnt sér málið. Þess vegna held ég að það sé enn þá nauðsynlegra fyrir meiri hlutann á Alþingi og stjórnvöld að kynna þennan pakka hlutlægt og almennilega og af einhverjum sóma fyrir þjóðinni þannig að meiri hlutinn á Alþingi geti þá með einhverju móti hugsanlega unnið meiri hluta þjóðarinnar á sitt band.